I have raised a pole of shame (Níðstöng) against the despicable Óskar Björnsson, who ran over my dear Goði on purpose on November 25th last year with the result that his spine was broken and he had to be put to sleep..
I curse the scoundrel and I call upon the Guardian Spirits of Iceland to drive him from the country or leave him dead. May he rot in Hell.
I advise you, Loddfafnir,
to take advice;
you would benefit, it you took it,
good will come to you, if you accept it:
when you come upon misdeeds
speak out about those misdeeds, *
and give your enemies no peace.
An explanation of the ancient way of formal insulting may be found here.
Dec. 20th. UPDATE: The message has been received by it´s target. The Guardian Spirits of Iceland have been roused from their slumber and Iceland is now experiencing the worst storm in several decades.
My purpose with this was to find a legal way to vent my anger and draw attention to this man´s actions. He should know that his actions have consequences.
As the days grow longer it is time to move on.
I will remove the Pole of Shame on Winter Solstice, December 22nd. As of that date, this case is closed, although the curse remains in effect.
———————————————————————————————————————————————
Þann 9 desember, 2006 reisti ég níðstöng og sneri níðinu á hönd Óskari Björnssyni á Bíldudal. Hann er níðingurinn sem ók yfir Goða minn af ásetningi þann 25 nóvember í fyrra með þeim afleiðingum að hann hryggbrotnaði og eigi varð hjá því komist að svæfa hann.
Ég las upp eftirfarandi texta sem ég festi síðan á níðstöngina:
Hér set ég upp níðstöng og sný ég þessu níði á hönd Óskari Björnssyni.
Sný ég níði þessu á landvættir þær er land þetta byggja, svo að allar fari þær villur vegar, engi hendi né hitti sitt inni, fyrr en þær reka Óskar Björnsson úr landi eða gangi af honum dauðum.
Megi hann rotna í helvíti.
Þorvaldur Stefánsson
Otradal í Arnarfirði
20. desember: Markmiði mínu með níðstönginni hefur verið náð. Landvættirnar hafa vaknað af værum blundi, á landinu gervöllu er aftakaveður og einhverjir verstu vatnavextir í manna minnum.
Tilgangur minn með níðstönginni var að fá útrás fyrir reiði mína gagnvart þessum manni sem olli mér slíkum harmi með ódæðisverki sínu og einnig að vekja athygli samfélagsins á því að réttarkerfið virðist ekki ná til manna sem fremja slík óhæfuverk. Þessi mannleysa hefur aldrei beðist afsökunar á ódæðisverkinu, hann hefur engar bætur boðið mér heldur. Það eina sem hann sagði við mig um það bil viku síðar var 'af hverju passaðir þú ekki helvítis hundinn?'.
Níðingurinn hefur nú kært mig til lögreglunnar á Patreksfirði fyrir að reisa sér níðstöng.
Markmiði mínu er því náð – athygli umheimsins beinist nú að honum og verknaði hans.
Tími er til kominn að líta fram á veginn nú þegar daga tekur brátt að lengja á ný og mun ég því fjarlægja níðstöngina á Vetrarsólstöðum þann 22. desember.
Frá og með þeim degi er máli þessu lokið af minni hálfu. Vonandi ber þessi mannleysa gæfu til þess að verða ekki framar á vegi mínum. Bölvunin er þó áfram í fullu gildi.
21 desember: Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld var stutt umfjöllun um málið þar sem ekki var rétt með farið.
Sagt var: ' þetta var gert til að hefna fyrir hvolp sem hljóp fyrir 8 tonna dráttarvél í launhálku fyrir ári síðan og drapst'
Hið rétta er: Við vorum 5 menn á gangi á veginum þegar dráttarvélin sem var með áföstum sturtuvagni kom aðvífandi. Ég sagði við mennina sem voru með mér, við skulum allir fara út á vinstri kantinn og gefa vélinni pláss. Hundurinn Goði sem var af tegundinni Ungversk Vizsla, varð einn eftir á miðjum veginum og maðurinn ók viðstöðulaust yfir hann, þannig að hann fór á milli framhjóla vélarinnar, svo á milli afturhjólanna, undir miðjan sturtuvagninn, en drifkúlan á hásingu sturtuvagnsins lenti á honum með þeim afleiðingum að hann hryggbrotnaði. Skilyrði þennan dag voru eins og best verður á kosið, bjart og ENGIN hálka. Goði var 6 mánaða gamall og vóg um 35 kg. Enginn okkar sá nein merki þess að Óskar Björnsson reyndi að afstýra ´slysinu´ og þegar við þustum að Goða þar sem hann lá hryggbrotinn í götunni, hélt ökumaður dráttarvélarinnar áfram eins og ekkert hefði í skorist.
Á þessum tíma hafði ég ekki bifreið til umráða og það tók langan tíma að fá lánaða bifreið svo hægt væri að flytja Goða til dýralæknis á Ísafirði. Það tók því rúmlega 3 klukkustundir að koma honum undir læknishendur. Allan þann tíma sat ég með hann í aftursæti bifreiðarinnar og hann tók aldrei af mér augun, þar til hann sofnaði loksins hjá dýralækninum. Myndataka leiddi í ljós að Goði var hryggbrotinn og því var ekki um annað að ræða en að svæfa hann svefninum langa.
Mennirnir fjórir sem með mér voru og urðu vitni að níðingsverki Óskars Björnssonar gáfu allir skýrslu til lögreglu á Patreksfirði strax eftir atburðinn og þær skýrslur liggja þar fyrir.
Níðingurinn Óskar Björnsson eða menn honum tengdir komu þessari frétt í Stöð 2 – EKKI var haft samband við mig af þeirra hálfu. Hann og/eða þeir eru að reyna að búa til atburðarás sem virðist honum í hag.
Þetta finnst mér vera óvönduð vinnubrögð af hálfu fréttamanna Stöðvar 2. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa um fréttaflutning að rætt sé við alla aðila sem að málinu koma.
Ég vil geta þess að hún Birta mín sem sést í þessu myndskeiði og er eldri systir hans Goða hefur aldrei áður gelt að nokkrum manni fyrr en þarna. Hún skynjaði greinilega eitthvað óhreint í fari mannsins sem var þarna að taka myndir. Þegar ég nálgaðist svo manninn til að ræða við hann, svifti hann sér inn í bifreið sína og ók með hraði á brott. Ekki vildi betur til en að maðurinn ók í vitlausa átt og sneri hann við á veginum um það bil 100 metra í burtu og ók svo hratt framhjá mér í átt að Bíldudal. Hann var á vínrauðum yfirbyggðum japönskum pallbíl en ég sé ekki nógu vel eftir slysið í sumar til að hafa náð númeri bifreiðarinnar.
Ekki þarf mikið hugmyndaflug til að gizka á að þetta hafi verið sami maður og hringdi í mig seint á laugardagskvöld, neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við mig. Hótanir hins nafnlausa hugleysingja voru á þá leið að ég skyldi ekki halda að ég kæmist upp með þetta og ég gæti ekki farið rólegur að sofa í framtíðinni. Ef ég vildi stríð þá fengi ég stríð.
Ég átti fimmtugsafmæli á síðasta ári og ákvað þá að láta bernskudraum minn rætast og eignast hund í fyrsta sinn á ævinni.
Goði var dýrindis veiðihundur af göfugu kyni (Ungversk Vizsla), ótrúlega efnilegur og yndislegur félagi.
Hans er sárt saknað.
Óskar Björnsson kramdi hjarta mitt með níðingsverki sínu og hefur síðan vaðið yfir mig á skítugum stígvélunum með framferði sínu ef svo má að orði komast. Hann virðist vera algjörlega siðblindur og ég er viss um að hann á ýmislegt ljótt á samviskunni. Hann fær vonandi makleg málagjöld áður en yfir lýkur.
22 desember 2006: Ég ræddi við Þóri Guðmundsson hjá Stöð 2 um fréttaflutning þeirra í gærkveldi og hann lofaði að athuga málið. Áður hafði ég tekið níðstöngina niður.
Um kvöldið horfði ég á fréttir Stöðvar 2 og á Ísland í dag sem sýnt var eftir fréttir. Í fréttum vikunnar var aftur fjallað um málið og nú á allt öðrum og jákvæðari nótum. Fréttamönnum Stöðvar 2 er því fyrirgefið.
-
- Ráðumk þér, Loddfáfnir,
- en þú ráð nemir.
- Njóta mundu ef þú nemur,
- þér munu góð ef þú getur:
- Hvar er þú böl kannt,
- kveð þú það bölvi að
- og gef-at þínum fjándum frið.
Hér fyrir neðan má sjá bréf frá Sýslumanninum á Patreksfirði. Ég lít svo á þessa niðurstöðu sem viðurkenningu á því að ég er í fullum rétti að benda opinberlega á níðing sem gert hefur á minn hlut.
Að lokum, þar sem fram kom í fjölmiðlum að ég teldi mig vera afkomenda Egils Skallagrímssonar, þá sýnir taflan hér fyrir neðan hvernig ég rek ættir mínar til Egils. (heimild: íslendingabók)
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Start Slide Show with PicLens Lite

