I decided to get on the air day before the contest in the hope that increased activity might result. I easily made more than 100 QSOs in about two hours, and at times the band sounded like 20 meters. I heard stations all over the US and a couple of stations in JA and one HL3 with reasonable signals.
When the contest started I had high hopes of a good score, but 2 hours into the contest with only a single contact – TF3KX I realized that this wasn´t going to happen.

At 2330 I was up to around 140 QSOs and was bored stiff with the lack of activity. I could hear signals everywhere, mostly weak almost none of them lifting the S meter, and it was tough to make myself heard when I called them.
I started again 0930 on Sunday morning and made only 24 QSOs more until the end of the contest at 1500.
My furthest QSO was with NP4A – 6,000km, I heard N6RO with a 519 signal and I spent an hour calling JA3YBK who did not hear me or GM4POI and a few OH stations who were also calling him.
I believe that a TF to JA QSO has never taken place yet, so this was quite exciting.

My strategy of getting on the day before the contest in the hope that those stations and their friends would show up in the contest failed miserably.
After the contest finished, I continued on 160M in the hopes of snagging a JA, I easily made another 100 QSOs all over Europe, again none of those made any effort while the contest was on.
Final score: 164 QSOs 987 points
Lesson learned : My antennas are too small. I will be back.
text in icelandic:
Ég hef eytt mörgum vikum, blóði og svita á tveggja ára tímabili til að koma upp almennilegu sendiloftneti fyrir 160M og tókst það að lokum degi fyrir CQ WW DX keppnina í nóvember. Slysið sem ég varð fyrir tafði einnig framkvæmdina. Enn er eftir nokkur vinna við að ganga frá loftnetinu betur en það er YCCC Double L loftnet
sjá: http://www.yccc.org/Articles/double_l.htm
með efsta part í 24 metra hæð, loftnetið er fætt með opinni fæðilínu sem er ca 800 metra löng með 12:1 balun spennum á báðum endum. Ég notaði loftnetið bæði til sendingar og móttöku enda mjög lítið suð hér í Otradal. Mig grunar að staðsetning loftnetsins sé misráðin hjá mér, fjöllin skyggja á stóran hluta sjóndeildarhringsins og því verði ég að koma 160M loftneti niður að sjó.
Rétt fyrir Stew Perry keppnina datt mér í hug að prófa loftnetið og etv auka við virknina í keppninni hugsaði sem svo að ef menn vissu að TF yrði í loftinu í keppninni myndu þeir eða félagar þeirra kalla í mig í keppninni.
Ég hafði auðveldlega rúmlega 100 QSO á stuttum tíma og var því vongóður um árangur í keppninni.
Heyrði m.a. í HL3 og JA um kvöldið með þokkalegum merkjum.
Fyrsta QSO í keppninni var við TF3KX sem kallaði í mig eftir næstum tveggja tíma árangurslaus CQ.
Þrátt fyrir að hafa ekki heyrt tíst fram að þessu, með viðtækið skrúfað í botn, þá kom það í tvígang fyrir að mjög sterk merki flugu flautandi framhjá mér, slógu S mælinn í botn og voru svo horfin. Ég veit ekki hvað þetta getur hafa verið, kannske er þetta eitthvert náttúrulegt fyrirbæri? Hefur einhver skýringu á þessu? var síðan að til 2330 þá kominn í 140 QSO og alveg við að hætta að nenna þessu.
Byrjaði aftur klukkan 0930 morguninn eftir og náði 20 samböndum á næstu fjórum klukkustundum!
Eyddi þvínæst löngum tíma í að reyna að ná sambandi við JA3YBK sem hafði þokkalegt merki en virtist ekki vera með móttakara, því hann hunsaði bæði mig og GM4POI og nokkrar OH stöðvar sem kölluðu líka í hann í næstum klukkustund.